Að halda áfram!

Að halda áfram og gefast ekki upp er mun auðveldara sagt en gert. Já já já, enn eina ferðina er ég að byrja að breyta lífstílnum mínum til hins betra lífs! Það segja allir sem hafa verið í ofþyngd að eftir að þeir grenntust hafa þeir öðlast betra líf, fengið aukna orku og meiri lífsgleði! [...]

Kvöldmatur

Ég eldaði svo góðan kvöldverð að ég verð að setja hann hér inn Sveppir, Paprika, Skinka steikt á pönnu. Setti svo slatta af spínati á pönnuna og lét það mýkjast. Setti egg og slettu af mjólk í skál og kryddaði það með origano, aromat, sison all og hvítlaukssalti. Átti 5 bita af feta osti og [...]

Offita

Ég hef ekki mikinn tíma til að spá í það sem ég er að láta ofaní mig núna. Ég held að það sé álagið sem er á mér núna, verkefni og lokapróf í skólanum. Ég bara gúffa í mig öllu sem ég get, bakaði amerískar pönnukökur um helgina og borðaði þær með Agave sýrópi og [...]

mánudagurinn alltaf sá besti

Já þannig er þetta þegar maður er fullur af krafti og ætlar að fara breyta lífstílnum sem maður hefur skapað. Mánudagurinn gekk frábærlega en hvað gerðist svo í gær? vaknaði á þriðjudegi, var rosa dugleg allan daginn til kl 20:18. Jább þá allt í einu áður en ég vissi var ég komin með suðursúkkulaði upp [...]

er búin að týna mér

Já það er rétt!! ég er búin að týna sjálfri mér. Getur einhver sagt mér hvert ég fór? Ég er týnd í spikinu á sjálfum mér og er alveg að fara missa námið úr höndunum á mér ef ég geri ekki einkvað og það strax í dag. Ég er búin að tala við lækni og [...]

er hér enn…

Hæ hæ, ég er hér ennþá! En staðan hjá mér er sú sama og vanalega…er ekki að gera nógu mikið svo árangur náist. En ég viktaði mig á mánudaginn, og ætla að muna að vikta mig aftur næsta mánudag. Heyrumst þá… Kveðja Rakel

þessi vika…

þessi vika byrjaði ekki vel. Gleymdi að vigta mig, búin að vera geðveikt þreytt, búin að borða mjög óholt… ekki gott. En ég fór í göngu/skokk-túr á mánudaginn og var að koma úr ræktinni núna, verð bara að rífa mig upp. Þori ekki að stíga á vigtina strax og ætla því að fresta því fram [...]

6. vikan að byrja

Jæja nún eru fimm vikur liðnar og ég er 300 gr fyrir ofan byrjunartöluna. Vikan byrjaði vel en svo var ferðalag og djamm um helgina og allur árangurinn farinn. Ég verð greinilega að draga úr djammeríinu ef ég vill sjá einhvern árangur. En ég var að koma úr ræktinni, tók fyrir efri skrokk. Er að [...]

komin heim á viktina….

Jæja ég viktaði mig í morgun og var þá 101,2 kg sem gerir -900gr. Það er nú bara ágætt. En síðasta vika gekk líka bara ágætlega, matarræðið gekk þokkanlega og hreyfði mig þrisvar sinnum, sund, ræktin og göngutúr. Í morgun fór ég svo í ræktina, lagði ekki í sundið þar sem frostið var í tveggjastafa [...]

Viktun á morgun

Þar sem ég er ekki heima hjá mér í dag þá hef ég ekki komist á viktina en geri það á morgun. Annars gengur þetta bara ágætlega. Ég er að vona að viktin fari einhvað smá niður, held að hún geri það en maður veit samt aldrei. En ég vil óska vinkonu minni henni Siggu [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.