er búin að týna mér

Já það er rétt!! ég er búin að týna sjálfri mér. Getur einhver sagt mér hvert ég fór? Ég er týnd í spikinu á sjálfum mér og er alveg að fara missa námið úr höndunum á mér ef ég geri ekki einkvað og það strax í dag. Ég er búin að tala við lækni og námsráðgjafa, læknirinn sagði að allt væri 100% hjá mér (blóðprufurnar) og námsráðgjafinn setti niður skipulag fyrir mig, sem ég á erfitt að fara eftir.

Ég hef verið að hugsa málið og af hverju getur maður verið strangur foreldri og verið með aga á börnunum sínum, en ekki á sjálfum sér. Ég er búin að fá svar við þessari spurningu að það kallast EIGINGIRNI!!!

Vill ég vera eigingjörn?? nei það vill ég alls ekki og því verð ég að breyta.

2 svör

  1. ég er stolt af þér að þú sért komin aftur, það segi sig sjálf þú ert búin að finna þig, farin að leita þér hjálpar við þessu vandamáli já og viðurkenna þetta því það er stórt skref:)
    áfram á þessari braut elskan mín og þú veist það þú getur alltaf spjalla við mig:)
    knús knús sæta múin mín
    kveðja

  2. ég sjálf:
    Já ég er komin aftur en ég veit ekki hvernig þetta verður næstu tvær vikurnar því þá þarf ég fyrst og fremst að hugsa um skólan!!! annars er hann búinn að vera :(
    En eftir það, þá fer þetta heilsusátakið mitt á fullt og allt verður í fínasta lagi :D

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.